Atburđarteljari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Krúttin

Klukkan

Nýtt

09. júlí 2009 klukkan 17:03
Þessi síða er dauð :) Við Heiðar bloggum á 123.is/heiddi

Sjáumst

Hahahhaha FYRSTI APRÍL!!!!

01. apríl 2009 klukkan 18:42

Hahaha 
híhíhí 
Húhúhú
HAHAHA

KJÁNAPRIK!!!!! 

Klippt og skoriđ

13. september 2008 klukkan 17:20
JæjaseinastaáriðíKennófariðafstað. Núermaðurelsturískólanumogþarfaðveragóðfyrirmynd! ÉgvarekkinógugóðfyrirmyndábusadaginnenígæráKennódjamminuvarégfínfyrirmynd. Varekkimeðskrípalætiheldurvarbaraprúð! AnnaðensumirsemfóruSkinnyDippingísundlauginniíÚthlíð! Hahahaha! Snillingar! Þaðergamanaðveraískólanum,næringarfræði,heilsurækt,lokaverkefni,alltskemmtilegt! ÉgeraðseljaHerbalifeefeinhvernvantaraðgrennast,standaístaðeðaþyngjasig:)Endilegahafiðsamband. Þaðererfiðaraenmaðurhelduraðskrifaánþessaðnotabil! Ernýbúiníklippingu,tókmikiðaf,þettaeryndislegt! Lítiðmeiraífréttum,hafiðþaðgott :)
Kv.KristínSigríðurGuðmundsdóttir

Bed for sale!!!

30. ágúst 2008 klukkan 20:11
Jæja, rúmið mitt er til sölu! Já getur ekki verið betra! Hugsið ykkur! 120 cm breitt gæðarúm frá Rúmgott. Mjög lítið notað, keypt fyrir 2 árum! Dýnuhlíf fylgir! Allt þetta á litlar 20.000 krónur! Bara gott tilboð!!!

Stebba, takk fyrir gott komment! Skal reyna að vera dugleg :) 

Bless

Kćra Dagbók

09. ágúst 2008 klukkan 10:52
Kæra Dagbók

Lífið er búið að vera gott. Ég er búin að fara í viku ferðalag með 2 strákum. Já, 2 strákum og ég var eina stelpan. Það var gaman. Þeir prumpuðu samt svolítið mikið og það var vond lykt. En ferðalagið var skemmtilegt. 
Fyrstu nóttina gistum við í Landmannalaugum. Fórum í laugina um kvöldið íg rosalega góðu veðri. Næsta dag vorum við að rúnta á Nyrðri-Fjallabak í sjúklega góðu veðri. Nótt tvö gistum við við Kirkjufellsvatn, sem er æðislega fallegt og friðsælt. 
Daginn eftir keyrðum við Sprengisand, skelltum okkur í laugaina á Laugafelli og enduðum á að gista efst í Eyjafjarðardalnum :) Fallegasti staður í geymi! 
Gistum á Húsavík næstu nótt á 5 stjörnu hóteli og síðan á Húnavöllum. Nóttina eftir gistum við hjá Gísla í uppsölum og síðan á Barðaströnd. Bara flott ferðalag. 
Á ég að segja þér Dagbók að þetta var mjög gaman og sáum við marga fallega staði. Gísli á Uppsölum heimsótti okkur um nóttina sem við sváfum en hann er góður kall. 

Já, kæra dagbók, nú snýst líf mitt bara um að gera sem minnst, spara sem mestan pening og læra fyri !"#"!!"### heilsufræðipróf :( Þannig að ég lifi nú sem gömul kona og prjóna á mig föt :( Hver sem vill kíkja í kaffi er velkomin :) 

Bless kæra dagbók
Takk fyrir að hlusta

Obbobbobb

22. júlí 2008 klukkan 14:55
Já hvað haldiði! Þetta sorglega komment sem benti svo sakleysislega á að það væri ekkert búið að blogga í alveg marga mánuði fékk mig til þess að opna tölvunna og viti menn! Skrifa nokkrar línur :) 

Þetta er helst í fréttum: 

  • féll í einu fagi í vor, heilsufræði #$%%##$"#$%#$$#$... annars gekk mér vel. 
  • er að vinna á nýjum heilsuleikskólan suður á Völlum í Hfj. Mjög gaman og skemmtilegt! 
  • núna er leikskólinn í fríi og því er ég að vinna á kaffihúsi á Laugaveginum sem heitir Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda. Er að vinna til 27. júlí milli 10 og 18, endilega kíkið við í kaffi og kökur :) 
  • við Heiddi ætlum að taka okkur vikufrí fyrir verslunarmannahelgi og rúnta um klakann... óskum hér með eftir samferðalöngum. 
  • erum búin að vera dugleg að ferðast í sumar, eiginlega önnur hver helgi nýtt í eitthvað sniðugt.
  • hjóluðum Fimmvörðuháls eins og bjánar í lok júní. Gaman eftir á :) 
  • Inga Bryndís og Arna ætla að yfirgefa Laugarvatnsbúa í vetur og vera í skiptinámi, en sem betur fer koma þær nú eitthvað heim á milli áfanga þannig að við fáum að sjá í trínið á þeim....
  • Guðrún greyið þarf að fara í aðgerð á hendinni því hún álpaðist að hlammast út úr flutningabíl og beint á hendina!!! ólukkan þar á ferð! 
Meira er ekki í fréttum að sinni, ég heiti Kristín Sigríður Guðmundsdóttir. Fréttir verða sagðar aftur að mánuði loknum. Takk fyrir.

Gúggílí gúggílí

21. apríl 2008 klukkan 21:37
Ég er komin með MYSPACE!!!! Hugsa sér... ég get ekki einu sinni haldið út eina bloggsíðu... og ég fæ mér - myspace! Eða sko... mér datt í hug að sem ein manneskja er ég ekkert rosa dugleg og Heiðar sem ein manneskja ekkert rosa duglegur að gera svona hluti, þannig að..... sem tvær manneskjur erum við hörkuöflug :D híhíhí 

www.myspace.com/stinaogheiddi 

Hlakka til að sjá ykkur öll á myspaceinu

Heyrðu svo fórum við í afmæli til Þorbjörns á laugardaginn og gáfum heldur óvenjulega heimatilbúna afmlisgjöf. Tékkið á þeim á http://album.123.is/?aid=93249 :) 

Puttinn inside out

10. apríl 2008 klukkan 19:38
Úff já... skar puttann í tætlur! Þurfti 7 spor á Laugarási! Never a dull moment í Hreiðrinu (þýðist: aldrei lognmolla í Hreiðrinu (bara fyrir þig Guðrún))...

Er á lífi... Skorinn putti

Kv. Stína puttalausa

Afmćli :)

16. janúar 2008 klukkan 10:41
Haldiði að ég hafi ekki gleymt að segja að ég ætti afmæli!!! Ég sem gleymi ALDREI afmælinu mínu og mynni sko alltaf alla á það!!!  Happy birthday to you!!! 
En ég átti voða fínan dag í gær! Mamma og pabbi og Beggi komu í heimsókn í mat, Inga bakaði handa mér köku og allt!  Svo í gær gerðist þau undur og stórmerki að það snjóaði og snjóaði og snjóaði hérna á Laugarvatni og það er allt á KAFI! Í tilefni dagsins í gær gat ég stungið mér í snjóinn garðinum og hvarf víst alveg!
Bara snilld!
 Let it snow, let it snow, let it snow!  

Ég þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar og kossana, símhringingar og sms
J  Nú er skólinn bara tekinn við á fullu og orðin soldið stressuð að fara til Austurríkis því ég missi af soldið miklu! En það þarf bara að reyna að vera duglegur og passa sig að læra!  Svo er vettvangsnám framundan, ég er að hugsa um að skella mér til sjúkraþjálfara og fylgjast með og læra J Svo erum við að fara að gera rosalega stórt verkefni... þar sem við eigum að græja ársáætlun sem á að vera 40 bls. Við eigum semsagt að gera ársáætlun fyrir hóp sem er að fara að keppa í einhverju og við ætlum að taka Þrekmeistarahóp, sem verður held ég rosalega spennandi og getur nýst manni mikið!  Jæja... nú ætla ég að læra ;)  Pís át oll mæ gúd pípols!

Gleđilegt ár!

14. janúar 2008 klukkan 21:24

Jæja, það er ekkert smá sem tíminn líður! Búin að fara til Boston, halda jól, selja fullt af flugeldum, halda upp á áramót og læra fyrir endurtökupróf og falla í því :( Þannig að fullt búið að gerast og nú er bara byrjuð ný önn í skólanum :) Allt komið á fullt!

En aðalmálið sem er næst á dagskrá er auðvitað... AUSTURRÍKI!!!

Shit hvað ég hlakka til ... prófa nýja brettið og svona!!! :)

Svo var sest niður í dag og önnin plönuð, brjálað að gera! Þessa önn verður leynivinavika, karla og kvennaferð, árshátíð, lokaball, skíðavika, vettvangsnám og ég veit ekki hvað og hvað :) Bara gaman!

Bæ!

Stína
1 athugasemd